Yfirlýsing peningastefnunefndar 12. febrúar 2014
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum.Áætlað er að hagvöxtur í fyrra hafi verið töluvert meiri en Seðlabankinn spáði í nóvember síðastliðnum. Samrýmist það vísbendingum um sterkan bata á vinnumarkaði sem áður voru komnar fram. Samkvæmt spá Seðlabankans sem birtist í dag mun hagvöxtur aukast á næstu tveimur árum og slaki í þjóðarbúskapnum hverfa fyrr en áður var talið.
Gengi krónunnar hefur hækkað á síðustu vikum þrátt fyrir umtalsverð gjaldeyriskaup Seðlabankans. Launakostnaður á framleidda einingu hækkar minna í ár en áður var spáð, að því gefnu að meginniðurstöður kjarasamninga sem gerðir voru fyrir áramót gildi fyrir vinnumarkaðinn í heild. Verðbólga á þessu ári verður því minni en áður var talið og nálægt markmiði. Verðbólguhorfur til næstu tveggja ára hafa hins vegar versnað frá nóvemberspá bankans þar sem horfur eru á að slaki í þjóðarbúskapnum snúist í spennu á tímabilinu.
Aðgerðir til þess að lækka verðtryggðar skuldir heimila munu hafa nokkur áhrif á efnahagshorfur næstu ára. Þær munu að óbreyttu auka einkaneyslu og innflutning og draga úr þjóðhagslegum sparnaði og viðskiptaafgangi, sem stuðlar að lægra gengi krónunnar en ella.
Horfur á meiri vexti innlendrar eftirspurnar munu að öðru óbreyttu krefjast þess að taumhald peningastefnunnar verði hert fyrr og meir en áður hafði verið búist við. Á móti gætu komið aðrar aðgerðir sem leggjast á sveif með peningastefnunni. Þar skiptir miklu máli hvaða stefnu verður fylgt í ríkisfjármálum á komandi árum. Einnig gætu endurbætur sem styrkja framboðshlið þjóðarbúsins dregið úr framleiðsluspennu og þar með úr verðbólguáhrifum aukinnar eftirspurnar.
Að því marki sem verðbólga hjaðnar frekar mun taumhald peningastefnunnar herðast án frekari vaxtabreytinga. Samkvæmt verðbólguspá bankans munu nafnvextir hans þó að óbreyttu þurfa að hækka þegar nær dregur því að slaki snúist í spennu. Þróun nafnvaxta bankans ræðst því sem áður af framvindu verðbólgu.
Vextir Seðlabanka Íslands verða eftir ákvörðunina sem hér segir:
Daglánavextir: 7,00%
Vextir af lánum gegn veði til sjö daga: 6,00%
Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum: 5,75%
Innlánsvextir: 5,00%