09. maí 2014
Afmælisráðstefna 9. maí til heiðurs Jóhannesi Nordal
Í ljósi reynslunnar nefnist afmælisráðstefna til heiðurs Jóhannesi Nordal í tilefni af níræðisafmæli hans. Ráðstefnan var haldin í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 9. maí. Ráðstefnan var haldin af Hagfræðideild Háskóla Íslands og Seðlabanka Íslands.Fimm erindi verða flutt á ráðstefnunni:
Már Guðmundsson seðlabankastjóri flytur fyrsta erindið og nefnir það: Jóhannes Nordal og peningamál á seinni hluta tuttugustu aldar.
Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri, flytur erindið: Jóhannes Nordal – fjölhæfur forystumaður.
Ásgeir Jónsson, lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands, flytur erindið: Aftur til fortíðar? Er stýring peningamagns með bindiskyldu framtíðin?
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, flytur erindið: Hvernig stuðlum við að virku og stöðugu fjármálakerfi á Íslandi?
Friðrik Már Baldursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, flytur erindið: Sjálfstæð peningastefna og fjármagnshöft.
Fundarstjóri er Sveinn Agnarsson.
Allir eru velkomnir.