![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
03. júní 2014
Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fyrsta ársfjórðungi 2014
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki37_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 12,1 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 11,2 ma.kr. hagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur á vöruskiptum við útlönd nam 9,3 ma.kr. en þjónustujöfnuður var jákvæður um 0,8 ma.kr. Jöfnuður þáttatekna mældist neikvæður um 22,2 ma.kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 3,5 ma.kr. samanborið við hagstæðan um 20,1 ma.kr. fjórðunginn á undan.
Sjá hér í heild frétt nr. 16/2014 um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu á fyrsta ársfjórðungi 2014:
Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fyrsta ársfjórðungi 2014.pdf