21. ágúst 2014
Nýjar upplýsingar um gjaldeyrismál - fjárfestingar
Seðlabanki Íslands hefur birt upplýsingar um gjaldeyrismál, sem tengjast fjárfestingum hér á landi og erlendis, á eftirfarandi slóð; https://www.sedlabanki.is/gjaldeyrismal/. Þar má nú meðal annars finna almennar upplýsingar um eftirfarandi:- Fjárfestingar hér á landi
- Nýfjárfesting
- Útboð Seðlabanka Íslands samkvæmt fjárfestingarleið
- Fjárfestingar samkvæmt undanþágulistum Seðlabankans
- Arður og vextir
- Fjárfesting í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri
- Endurfjárfesting
- Undanþágur til stofnunar dótturfélaga erlendis
- Fjárfestingar vegna atvinnureksturs
Nánari upplýsingar um gjaldeyrismál í tengslum við fjárfestingar má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið gjaldeyrismal@sedlabanki.is. Vinsamlegast athugið að hér er einungis átt við fyrirspurnir um gjaldeyrismál en beiðnir um undanþágu frá lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, verða að berast Seðlabanka Íslands bréflega ásamt gögnum er málið varða, sbr. 5. málsl. 1. mgr. 13. gr. o. laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.
Einnig er hægt að hringja í síma 5699600, en símatími lögfræðinga í gjaldeyriseftirliti er frá 10:00 til 12:00 alla virka daga.