![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
21. október 2014
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2014
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki34_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2014 útgefinni 19. september sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2014.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2014;
• Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2014