Ný rannsóknarritgerð um sveifluna á fasteignamarkaði 2003-2012
Út er komin rannsóknarritgerð nr. 66, „Icelandic boom and bust: Immigration and the housing market“, eftir Lúðvík Elíasson. Í ritgerðinni er fjallað þá miklu sveiflu sem var á fasteignamarkaði á árunum 2003 til 2012.
Nánar um efni rannsóknarritgerðarinnar:
Líkan af fasteignamarkaði sem kynnt var í grein Lúðvíks Elíassonar og Þórarins G. Péturssonar (rannsóknarritgerð nr. 29, síðar birt í Housing Studies) er metið yfir tímabilið til 2012. Fasteignaverð hækkaði á árunum 2004 til 2007 töluvert umfram það sem líkanið nær að skýra. Í ritgerðinni er leitað svara við þessu og kynnt sú niðurstaða að stór hluti verðhækkunar fasteigna á þessum árum stafi af fólksflutningum til landsins. Fólksflutningar frá landinu eiga svo þátt í þeirri verðlækkun fasteigna sem fylgdi í kjölfarið. Ekki hafa áður mælst svo sterk áhrif breytinga í mannfjölda á fasteignamarkað hér á landi enda hafa sveiflur í fólksflutningum til og frá landinu undanfarna áratugi ekki áður verið jafn miklar og á árunum frá 2004 til 2010. Sú bóla sem virðist hafa myndast í fasteignaverði 2004 til 2007 skýrist því að mestu leyti af þróun undirliggjandi stærða, svo sem breytinga á fjármögnunarkostnaði og aðgengi að lánsfé, auk fólksflutninga til landsins.
Rannsóknarritgerðir Seðlabanka Íslands má nálgast hér: Rannsóknarritgerðir