18. nóvember 2014
Fjármálainnviðir - nýtt rit um greiðslumiðlun og greiðslukerfi
Á morgun kemur út ritið Fjármálainnviðir en þar er greint frá ýmsum þáttum er varða greiðslukerfi og greiðslumiðlun hér á landi. Í ritinu er m.a. fjallað um notkun á reiðufé og um ýmsar hliðar á svokölluðu sýndarfé sem varað hefur verið við.
Ritið verður kynnt á sérstökum kynningarfundi með fjölmiðlum klukkan 10:30 á morgun og að því loknu birt á vef Seðlabanka Íslands.
Það verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Guðmundur Kr. Tómasson, framkvæmdastjóri fjármálainnviða, sem kynna efni ritsins. Athugið að engin vefútsending er frá þessum kynningarfundi.
Sjá hér nánari upplýsingar um efni af þessu tagi: