08. desember 2014
Jólapeysan og kynning á vaxtaákvörðun
Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur fallist á beiðni Barnaheilla um að styðja átak gegn einelti sem nú er í gangi með því að klæðast jólapeysu er hann greinir frá vaxtaákvörðun á miðvikudaginn, 10. desember, að því tilskildu að nægileg fjárhæð safnist í gegnum áheit á hann á heimasíðunni https://www.barnaheill.is/is.
Þeir sem hafa áhuga á að sjá Má í jólapeysunni á miðvikudaginn og vilja um leið styrkja gott málefni geta heitið á hann í gegnum síðuna hér.
Nánari upplýsingar á heimasíðunni https://www.barnaheill.is/is.