30. desember 2014
Greinargerð til ríkisstjórnar um verðbólgu undir fráviksmörkum
Seðlabanki Íslands hefur sent Ríkisstjórn Íslands greinargerð í tilefni af því að verðbólga fór í þessum mánuði undir fráviksmörk. Það var í fyrsta sinn síðan verðbólgumarkmið var tekið upp að verðbólga hefur farið niður fyrir neðri fráviksmörk sem fram koma í sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnar og Seðlabanka Íslands um verðbólgumarkmið frá 27. mars 2001. Greinargerðin er aðgengileg hér:
Greinargerð um verðbólgu undir fráviksmörkum des14 (pdf)