logo-for-printing

15. maí 2015

Könnun á væntingum markaðsaðila

Bygging Seðlabanka Íslands

Könnun á væntingum markaðsaðila var framkvæmd dagana 4.-6. maí sl. Leitað var til 33 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 19 aðilum og var svarhlutfallið því 58%.

Niðurstöður könnunarinnar í maí gefa til kynna að verðbólguvæntingar markaðsaðila til skamms tíma litið hafa hækkað töluvert frá janúarkönnun bankans en að langtímavæntingar hafa lítið breyst. Miðað við miðgildi svara í könnuninni virðast þeir vænta um 1,5% verðbólgu á öðrum fjórðungi þessa árs og 1,6% á þriðja fjórðungi sem er um 0,1-0,5 prósentum meiri verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun í janúar. Könnunin bendir einnig til þess að væntingar þeirra til verðbólgu eftir eitt ár hafi hækkað um tæplega 1 prósentu, í 3,5%. Væntingar þeirra um ársverðbólgu eftir tvö ár voru hins vegar óbreyttar í 3%. Væntingar um verðbólgu að meðaltali næstu fimm ár og tíu ár hafa hækkað um 0,2 prósentur milli kannana og eru nú 3,2%. Þá gefur könnunin til kynna að markaðsaðilar vænta þess að gengi evru verði 150 krónur eftir eitt ár sem er svipað og í síðustu könnun bankans.

Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að veðlánavextir bankans verði hækkaðir um 0,5 prósentur á þriðja fjórðungi þessa árs og um 0,25 prósentur til viðbótar á fyrsta fjórðungi þess næsta, í 6%. Það eru 0,75 prósentum hærri vextir en þeir væntu í janúarkönnun bankans. Þegar könnunin var framkvæmd töldu um 60% svarenda taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt sem er talsvert hærra en í janúar þegar um 20% svarenda töldu svo vera. Á sama tímabili hefur hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of þétt eða alltof þétt lækkað um rúmlega 45 prósentur, í tæplega 30%.

Í könnuninni í maí voru markaðsaðilar spurðir hvað þeir telja vera meginástæðu hækkunar verðbólguálags á skuldabréfamarkaði til 5 og 10 ára frá því í lok janúar sl. Taldi tæplega ¾ hluti svarenda aðstæður á vinnumarkaði vera meginástæðu hækkunar verðbólguálagsins.

Sjá væntingakönnunina hér: Væntingar markaðsaðila 2F2015.xlsx

Frekari upplýsingar um markmið og framkvæmd væntingakönnunar markaðsaðila má finna hérUpplýsingarit 1.3

Sjá ennfremur: Væntingakönnun markaðsaðila

Til baka