logo-for-printing

18. september 2015

Undanþágur og gjaldeyrisviðskipti vegna Icesave

Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Ingibjörg Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, undirrita undanþágu TIF vegna Icesave-samninganna

Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) hefur náð samkomulagi við seðlabanka Hollands (DNB) og breska innstæðutryggingarsjóðinn (FSCS) sem felur í sér að sátt hefur náðst á milli opinberra aðila í þessum þremur löndum vegna Icesave-innlánsreikninga Landsbanka Íslands (LBI).

Eins og komið hefur fram þá endurheimti DNB útlagða fjármuni að fullu í ágúst 2014. Fullnaðargreiðslu til FSCS frá LBI er áætluð annaðhvort samhliða nauðasamningi LBI á grundvelli stöðugleikaskilyrða eða eftir greiðslu LBI á stöðugleikaskatti, í samræmi við áætlun stjórnvalda um afnám fjármagnshafta. Nú þegar hefur FSCS fengið 84,2% af kröfu sinni greidd frá þrotabúi LBI.

Til að greiða fyrir samkomulaginu og gera fullnustu þess mögulega veitti Seðlabanki Íslands þrjár undanþágur frá fjármagnshöftum. Tvær undanþágur lutu að krónuinnstæðum að fjárhæð 9,5 ma.kr. sem tengdust greiðslum til DNB og FSCS úr LBI. Ein undanþága var til TIF sem laut að greiðslu 20 ma.kr. til DNB og FSCS. Til að fullnusta uppgjörið átti Seðlabankinn þátt í gjaldeyrisviðskiptum sem fólu í sér að 22,1 ma.kr. í íslenskum krónum var skipt í erlendan gjaldeyri og hann greiddur til DNB og FSCS. Þá var gjaldeyrisinnstæða TIF hjá Seðlabankanum að fjárhæð 7,4 ma.kr. greidd til sömu aðila. Samtals lækkaði gjaldeyrisforði Seðlabankans um 29,5 ma.kr. af þessum sökum.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 5699600.

Myndatexti: Á myndinni, sem tekin var í gær, má sjá Má Guðmundsson seðlabankastjóra og Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, undirrita undanþágu TIF vegna Icesave-samninganna.

 

Frétt nr. 19/2015
18. september 2015

 

Til baka