logo-for-printing

21. október 2015

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2015

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2015 gefin var út 17. september sl. þar sem stýrivextir hafa ekkert breyst síðan þá. Dráttarvextir breytast því ekki og verða áfram 13,25% fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2015;

 • Vextir óverðtryggðra útlána 7,00% - (voru 6,60%)
 • Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (óbreyttir)
 • Vextir af skaðabótakröfum 4,67% - (voru 4,40%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2015

 

 

Til baka