logo-for-printing

07. júlí 2016

Fundargerð fyrsta fundar Þjóðhagsráðs

Stofnfundur Þjóðhagsráðs var haldinn 8. júní sl. Aðilar að ráðinu eru er forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands. Markmið Þjóðhagsráðs er að styrkja samhæfingu hagstjórnar og ákvarðana á vinnumarkaði. Á fundum ráðsins skal fjalla um stöðu í efnahagsmálum og ræða samhengi opinberra fjármála, peningastefnu og kjaramála í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni, og skal ráðið beina umfjöllun sinni sérstaklega að þáttum þar sem samhæfingu er helst ábótavant. Fundi ráðsins skal halda að lágmarki tvisvar á ári og skal fundargerð þeirra birt á heimasíðum aðila að ráðinu. Már Guðmundsson seðlabankastjóri undirritaði stofnyfirlýsingu Þjóðhagsráðs fyrir hönd Seðlabanka Íslands. Á fundinum fjallaði hann um helstu áskoranir sem stjórn peningamála stæði frammi fyrir. Auk seðlabankastjóra sátu Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabankans og Rannveig Sigurðardóttir staðgengill hans fundinn.

Hér má sjá fundargerð fyrsta fundar Þjóðhagsráðs: Fundargerð Þjóðhagsráðs, fyrsti fundur

Hér má sjá kynningarefni Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fundinum: Kynningarefni seðlabankastjóra á fundinum: Áskoranir peningastefnunnar

 

Til baka