logo-for-printing

29. ágúst 2016

Opinn fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis

Peningastefnunefnd 2016

Vefútsending frá opnum fundi peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd hefst nú klukkan 9:30. Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Þrettándi fundur peningastefnunefndar með Alþingi verður haldinn í dag.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans og peningastefnunefndarmaður, og Gylfi Zoëga prófessor í hagfræði og peningastefnunefndarmaður munu mæta á fundinn.

Fundurinn hefst kl. 09:30 og verður útsending frá fundinum hér.

Inngangsorð seðlabankastjóra frá fundinum er að finna hér.

 


Til baka