logo-for-printing

10. janúar 2017

Útgáfudagar fyrir lánshæfismat ríkissjóðs 2017

Bygging Seðlabanka Íslands

Matsfyrirtækjunum Standard & Poor‘s, Moody´s Ratings og Fitch Ratings er gert að birta dagsetningar fyrir útgáfu á uppfærslu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins, samanber ESB reglugerð númer 462/2013 (CRA3). Reglugerðin miðar að því meðal annars að auka gagnsæi í starfsemi matsfyrirtækja og auka ábyrgð matsfyrirtækjanna. Það hefur sýnt sig að lánshæfismat getur haft mikil áhrif á lánskjör sem ríkissjóðir aðildarríkja Evrópusambandsins njóta og því talið æskilegt að reglulegar tilkynningar m.a. um breytingar í þeim efnum séu í föstum farvegi. Þar sem aðalgreinandi Moody‘s fyrir ríkissjóð Íslands er staðsettur í ríki utan Evrópusambandsins er ekki gerð krafa til þess að fyrirtækið birti áætlun fyrir árið.

Reglugerðin gildir einnig fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en hún ásamt nokkrum nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. ESB reglugerð númer 1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum.

Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra.

Matsfyrirtækin hafa birt dagsetningar 2017 fyrir Ísland sem hér segir:

 

Matsfyrirtæki Dagsetning  Dagsetning     Dagsetning    
 Standard & Poor's   13. janúar  30. júní  22. desember
 Fitch Ratings  13. janúar  7. júlí  8. desember

 

Til baka