![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Opinn fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd í dag
![Peningastefnunefnd 2012 Peningastefnunefnd 2012](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/peningastefnunefnd_2012_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands funda í dag með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Það verður fjórtándi fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Katrín Ólafsdóttir lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík og peningastefnunefndarmaður mæta á fundinn. Fundurinn verður sendur út á vef Alþingis. Sjá hér.
Á dagskrá fundarins er skýrsla peningastefnunefndar, sjá hér.
Inngangsorð seðlabankastjóra frá fundinum má finna hér.
Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Fundurinn á morgun hefst kl 09:00.