logo-for-printing

05. maí 2017

Kaup Seðlabanka Íslands á aflandskrónum

Seðlabanki Íslands tilkynnti 12. mars síðastliðinn um kaup á aflandskrónueignum, eins og þær eru skilgreindar í lögum nr. 37/2016, um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, að fjárhæð um 90 milljarðar króna á genginu 137,5 krónur á evru. Jafnframt var tilkynnt að bankinn hygðist bjóða þeim eigendum aflandskróna sem ekki áttu aðild að samningunum 12. mars sömu kjör. Það boð var ítrekað 4. apríl sl. með frétt bankans um fyrirkomulag og skilmála. Frestur til þátttöku rann út föstudaginn 28. apríl sl og er nú verið að fara yfir viðbrögðin.

Fjöldi áhugasamra náði ekki að ganga frá viðskiptum innan þess tímaramma sem bankinn setti. Því hefur bankinn ákveðið að framlengja tímabilið sem milligönguaðilar Seðlabankans hafa til að skila inn boðum til 15. júní 2017.

Tilboðið nær til erlendra fjármálafyrirtækja, sjóða og viðurkenndra mótaðila sem uppfylla skilyrði um varnir gegn peningaþvætti og aðrar kannanir á áreiðanleika viðskiptamanna gagnvart Clearstream Banking S.A og Euroclear Bank S.A./N.V., sem verða milligönguaðilar Seðlabankans í tilboðinu. Slíkir aðilar geta átt viðskipti hvort sem er fyrir eigin reikning eða fyrir hönd viðskiptavina sinna. Eigendur aflandskróna skulu hafa samband við vörsluaðila viðkomandi eigna vegna viðskipta og uppgjörs en frestur til viðskipta og uppgjör viðskipta getur verið mismunandi eftir vörsluaðilum. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og skilmála tilboðsins verða birtar á næstu dögum.

Nánari upplýsingar veita Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og fjárstýringar, í síma 569 9600. Fyrirspurnir um framkvæmd er hægt að senda í netfangið offshore@sedlabanki.is.

 

 


Nr. 13/2017
5. maí 2017





Til baka