logo-for-printing

19. maí 2017

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2017

Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 04/2017 dagsett 18. apríl sl. en meginvextir, áður fyrr nefndir stýrivextir, lækkuðu um 0,25% hinn 17. maí sl. sbr. tilkynningu þar um sama dag hjá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán til innlánsstofnana gegn veði í 7 daga, lækkaði þar að leiðandi um 0,25% úr 5,75% í 5,50%,
Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,25% úr 12,75% og verða 12,50% fyrir tímabilið 1. - 30. júní 2017.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast aftur á móti óbreyttir og verða áfram tímabilið 1. – 30. júní 2017 sem hér segir:
        • Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,35%
        • Vextir verðtryggðra útlána verða 3,65%
        • Vextir af skaðabótakröfum verða 4,23%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2017


Til baka