logo-for-printing

30. júní 2017

Matsfyrirtækið Standard og Poor‘s staðfesti í dag A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs, með stöðugum horfum

Bygging Seðlabanka Íslands

Í samræmi við birtingaráætlun sína staðfesti Standard &Poor‘s í dag, 30. júní, A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtíma- og skammtímaskuldir í erlendum og innlendum gjaldmiðlum. Stöðugar horfur endurspegla þá skoðun matsfyrirtækisins að möguleikarnir á frekari styrkingu opinberra fjármála vegi á móti hættunni á ofhitnun hagkerfisins á næstu tveimur árum.

 

Fréttatilkynningu matsfyrirtækisins má sjá hér: Fréttatilkynning matsfyrirtækisins Standard & Poor's

Til baka