logo-for-printing

20. september 2017

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2017

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 08/2017 dags 17. ágúst sl. þar sem peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum (stýrivöxtum) óbreyttum við síðustu vaxtaákvörðun sína hinn 23. ágúst sl. samanber yfirlýsingu þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði, helst því óbreyttur 5,25%.
Dráttarvextir haldast þar að leiðandi einnig óbreyttir og verða því áfram 12,25% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2017.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2017:
• Vextir óverðtryggðra útlána 5,85%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,90%  

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2017

 

 

Til baka