logo-for-printing

19. október 2017

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, lækkaði sem nam meginvaxtalækkuninni um 0,25% og fóru úr 5,25% niður í 5,00% við meginvaxtalækkunina.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,25% og fara úr 12,25% og verða 12,00% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2017.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breyttast og verða fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2017 sem hér segir:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 5,60% - (lækka úr 5,85%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,65% - (eru óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 3,73% - (lækka úr 3,90%) 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2017


Til baka