logo-for-printing

13. febrúar 2018

Málstofa um vöxt lífeyriskerfisins í þjóðhagslegu samhengi þriðjudaginn 13. febrúar

Skógarþröstur við byggingu Seðlabanka Íslands

Of mikið af hinu góða? Vöxtur lífeyriskerfisins í þjóðhagslegu samhengi. Málstofa um þetta efni verður haldin í Sölvhóli, fundarherbergi í Seðlabankanum þriðjudaginn 13. febrúar kl. 15:00. Frummælandi verður Gylfi Magnússon, viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Ágrip:

Í fyrirlestrinum verður fjallað um sögulegan vöxt íslenska lífeyriskerfisins og framtíðarhorfur. Sérstaklega verður reynt að greina þjóðhagsleg áhrif vaxtarins – og jafnframt þær skorður sem stærð hagkerfisins og fjármagnsþörf setur innlendum vexti kerfisins og að hvaða marki æskilegt er að kerfið eignist erlendar eignir. Þá verður fjallað um samþjöppun eignarhalds á íslenskum verðbréfamarkaði, sérstaklega hlutabréfamarkaði, vegna stækkunar lífeyriskerfisins og áhrif þess. Loks verður skoðað að hvaða leyti aukin áhersla á gegnumstreymi í stað sjóðsöfnunar gæti verið álitlegri kostur. Byggt verður á nokkrum fræðigreinum og skýrslum sem frummælandi hefur birt um efnið.

Við flutning erindisins studdist Gylfi við efni í meðfylgjandi kynningarskjali.
Til baka