logo-for-printing

23. febrúar 2018

Gylfi Zoëga endurskipaður í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands

Gylfi Zoëga
Forsætisráðherra hefur endurskipað Dr. Gylfa Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, fulltrúa í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands samkvæmt ákvæði í lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands. Gylfi hefur setið í peningastefnunefnd frá 2009.
Gylfi hefur verið prófessor við Háskóla Íslands frá árinu 2003 en hann er einnig prófessor í hlutastarfi við Birkebeck College í London. Hann starfaði áður sem hagfræðingur hjá Alþjóðabankanum og OFCE í París. Gylfi lauk doktorsprófi í hagfræði frá Columbia háskóla í New York árið 1993.

Um peningastefnunefnd
Samkvæmt 24. gr. laga um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001 eru ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum teknar af peningastefnunefnd. Stjórntæki bankans teljast í þessu sambandi vera vaxtaákvarðanir hans, viðskipti við lánastofnanir önnur en tilgreind eru í 2. mgr. 7. gr. laganna, ákvörðun um bindiskyldu skv. 11. gr. og viðskipti á gjaldeyrismarkaði skv. 18. gr. sem hafa það að markmiði að hafa áhrif á gengi krónunnar. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu grundvallast á markmiðum Seðlabanka Íslands og vönduðu mati á ástandi og horfum í efnahags- og peningamálum og fjármálastöðugleika. Í peningastefnunefnd sitja seðlabankastjóri, sem er formaður, aðstoðarseðlabankastjóri, einn af yfirmönnum bankans á sviði mótunar eða stefnu í peningamálum og tveir sérfræðingar á sviði efnahags- og peningamála sem forsætisráðherra skipar til fimm ára í senn.
Til baka