logo-for-printing

27. febrúar 2018

Ný rannsóknarritgerð um mat á áhrifum Airbnb á íbúðamarkað

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerð um áhrif Airbnb á íslenskan húsnæðismarkað. Ritgerðin er á ensku og er gefin út í ritgerðarröðinni Working Papers.

Á undanförnum árum hefur færst í vöxt að íbúðarhúsnæði sé nýtt til skammtímaleigu fyrir ferðamenn. Gögn frá AirDNA um bókanir á vef Airbnb eru notuð til að búa til mælikvarða á fjölda íbúða sem eru fyrst og fremst nýttar í skammtímaleigu og nýtast því ekki lengur sem íbúðarhúsnæði fyrir aðra. Þessar upplýsingar eru notaðar til að meta áhrif Airbnb á íbúðaverð. Þá er fjöldi íbúða sem bætist árlega við þann fjölda sem nýttur er til skammtímaleigu borinn saman við fjölda nýrra íbúða sem eru byggðar á árinu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að árleg hækkun raunverðs íbúðarhúsnæðis sem rekja megi til aukinna umsvifa Airbnb á síðustu þremur árum sé um 2%, en það svarar til um 15% af þeirri hækkun sem orðið hefur á íbúðaverði á þeim tíma. Fjölgun Airbnb íbúða á þann mælikvarða sem hér er notast við svaraði til helmings til tveggja þriðju þeirra íbúða sem lokið var við að byggja á árinu 2016 á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá ritið hér: Working Paper No. 76: Short-term renting of residential apartments - Effects of Airbnb in the Icelandic housing market, eftir Lúðvík Elíasson og Önund Pál Ragnarsson.

Til baka