logo-for-printing

06. mars 2018

Málstofa um verðbólgu og trúverðugleika peningastefnu

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands.

Málstofa um hjöðnun verðbólgu og aukinn trúverðugleika peningastefnunnar var haldin, þriðjudaginn 6. mars, klukkan 15:00. Frummælandi er Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur í Seðlabanka Íslands. Málstofan verður haldin í húsnæði Seðlabankans, nánar tiltekið í fundarherberginu Sölvhóli á fyrstu hæð. Gengið er inn frá Arnarhóli.

Ágrip efnisins er eftirfarandi:

Í fyrirlestrinum er fjallað um mikilvægi bættrar kjölfestu langtímaverðbólguvæntinga við að skýra af hverju verðbólga hafi verið lítil og stöðug undanfarin ár þrátt fyrir kröftugan efnahagsbata. Mat á framsýnni Philips-kúrfu bendir til þess að kerfisbreyting hafi orðið á sambandi verðbólgu og lykil áhrifaþátta hennar árið 2012 og ólínulegar matsaðferðir gefa til kynna að kerfisbreytingin tengist hraðari lækkun langtímaverðbólguvæntinga en mælist með gögnum um verðbólguvæntingar á fjármálamarkaði. Lækkun verðbólguvæntinga er, ásamt mikilli lækkun innflutningsverðs, meginskýring hjöðnunar verðbólgu frá árinu 2012. Fyrrgreind kerfisbreyting er einnig mikilvæg skýring á því að spár hafa almennt ofspáð verðbólgu undanfarin ár. Þá eru lækkandi langtímaverðbólguvæntingar einnig mikilvæg ástæða þess að ekki þurfti efnahagssamdrátt til að framkalla þessa verðbólguhjöðnun eins og jafnan gerist.

 Við flutning erindisins studdist Þórarinn við efni í meðfylgjandi kynningarskjali.

Til baka