logo-for-printing

18. maí 2018

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2018

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 04/2018 dags 18. apríl sl. þar sem að engin breyting hefur verið á meginvöxtum (stýrivöxtum) síðan þá.
Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði, er því óbreyttur 5,00%. Dráttarvextir eru þar að leiðandi einnig óbreyttir og verða því áfram 12,00% fyrir tímabilið 1. - 30. júní 2018.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2018:
   • Vextir óverðtryggðra útlána 5,75% (voru 5,60%)
   • Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
   • Vextir af skaðabótakröfum 3,83% (voru 3,73%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 5/2018

 

 

 

Til baka