logo-for-printing

14. júní 2018

Fjármálainnviðir koma út í dag

Bygging Seðlabanka Íslands
Ritið Fjármálainnviðir 2018 verður birt á vef Seðlabanka Íslands í dag, fimmtudaginn 14. júní 2018 kl. 10:00.

Í ritinu, sem hefst á formála seðlabankastjóra, er að þessu sinni fjallað um kerfislega mikilvæga fjármálainnviði, um greiðsluflæði og sviðsmyndir áhættu, smágreiðslumiðlun og reiðufé.

Í ritinu er fjöldi skýringarmynda og talnaefni.

Ritið hefur komið út einu sinni á ári síðan 2013, en áður var þessi umfjöllun hluti af ritinu Fjármálastöðugleiki.
Til baka