![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
20. júlí 2018
Moody’s breytir horfum fyrir lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands í jákvæðar úr stöðugum
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki34_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Lykilforsendur fyrir breytingu á horfum í jákvæðar úr stöðugum eru:
1. Aukinn þróttur hagkerfisins í ljósi bættrar erlendrar stöðu þjóðarbúsins, stöðugri hagvaxtar og vaxandi styrkleika bankakerfisins.
2. Horfur eru á því að skuldastaða ríkisins verði betri en væntingar stóðu til.
Jákvæðar horfur endurspegla jafnframt þann árangur sem náðst hefur á síðustu tveimur árum varðandi þær meginforsendur sem Moody’s lagði til grundvallar þegar mat fyrirtækisins var hækkað í A3 í september 2016, þ.m.t. hnökralaus losun fjármagnshafta og lausn aflandskrónuvandans.
Staðfesting á einkunninni A3 endurspeglar jafnvægi á milli ofangreindra jákvæðra þátta og áskorana sem felast m.a. í smæð og tiltölulegri einhæfni hagkerfisins, þeirri óvissu sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir og getu hennar til að takast á við hægari en sjálfbærari vöxt, áskorunum varðandi samkeppnishæfni í ljósi komandi kjarasamninga og viðvarandi hættu sem stafar af ýktum fjármagnshreyfingum.
Fréttatilkynning Moody’s er hér í lauslegri þýðingu.
Fréttatilkynning Moody’ á ensku.
Moody´s Credit Opinion