logo-for-printing

18. september 2018

Peningastefnunefnd á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis

Peningastefnunefnd 2018

Fulltrúar í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands voru á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis 18. september 2018. Það voru Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Katrín Ólafsdóttir, meðlimur í peningastefnunefnd sem mættu til fundarins fyrir hönd peningastefnunefndar. Vefútsending var frá fundinum.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Sextándi fundur peningastefnunefndar með Alþingi var haldinn þriðjudaginn 18. september 2018.

Sjá hér inngangsorð Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fundinum.

Sjá hér á vef Alþingis nánari upplýsingar um fundinn, m.a. vefútsendingu.

Sjá hér og hér upplýsingar um peningastefnunefnd á vef Seðlabanka Íslands.

Þessi frétt hefur verið uppfærð.

Til baka