logo-for-printing

20. nóvember 2018

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2018

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 10/2018 dags 19. október sl. þar sem að breyting hefur orðið á meginvöxtum (stýrivöxtum) síðan þá.

Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði, hækkaði hinn 7. nóvember sl. um 0,25% og er nú 5,25%. Dráttarvextir hækka því sem nemur meginvaxtahækkuninni og verða 12,25% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2018.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2018:

    • Vextir óverðtryggðra útlána 6,00% (voru 5,75%)
    • Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
    • Vextir af skaðabótakröfum 4,00% (voru 3,83%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2018

Til baka