logo-for-printing

20. ágúst 2019

Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis

Bygging Seðlabanka Íslands

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis sem fjallar um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2019 hefur verið birt á vef bankans.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Lögin kveða á um að peningastefnunefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið fjóra reglulega fundi, og var síðasta vaxtaákvörðun kynnt 26. júní. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2019.

Sjá skýrsluna hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2019

Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar eru hér.

Til baka