logo-for-printing

19. september 2019

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2019

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 08/2019 dagsett 20. ágúst sl. en grunnur dráttarvaxta sem er lán gegn veði í 7 daga, lækkaði við síðustu meginvaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands undir lok ágúst sl. og er nú 4,25%.
Dráttarvextir breytast af þessum sökum og lækka í 11,25% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2019.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir lækka og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2019:

• Vextir óverðtryggðra útlána lækka í 5,30% - (voru 5,40%)
• Vextir verðtryggðra útlána lækka í 3,09% - (voru 3,19%)
• Vextir af skaðabótakröfum lækka í 3,53% - (voru 3,60%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2019


Til baka