logo-for-printing

21. október 2019

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2019

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 09/2019 dagsett 19. september sl. en grunnur dráttarvaxta sem er lán gegn veði í 7 daga, lækkaði við síðustu meginvaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands nú í byrjun október og er nú 4,00%.
Dráttarvextir breytast af þessum sökum og lækka í 11,00% fyrir tímabilið 1. - 30. nóvember 2019.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir lækka og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2019:

• Vextir óverðtryggðra útlána lækka í 5,20% - (voru 5,30%)
• Vextir verðtryggðra útlána lækka í 2,90% - (voru 3,09%)
• Vextir af skaðabótakröfum lækka í 3,47% - (voru 3,53%)

Dráttarvextir og vextir af peningakröfum nr. 10/2019

Til baka