logo-for-printing

11. nóvember 2019

Heimsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 30. október - 11. nóvember 2019

Bygging Seðlabanka Íslands

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur sent frá sér meðfylgjandi álit eftir tæplega tveggja vikna heimsókn til Íslands. Sendinefndin átti fundi með fulltrúum stjórnvalda, Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitsins, aðilum á vinnumarkaði og fulltrúum atvinnulífsins og fjármálastofnana. Heimsóknin er hluti af árlegri úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á stöðu og horfum í íslensku efnahagslífi (e. Article IV Consultation). Hliðstæðar úttektir eru gerðar í öllum aðildarlöndum sjóðsins.

Álit sendinefndarinnar var kynnt á fundi með fréttamönnum í Hannesarholti í Reykjavík í morgun. Formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi er Iva Petrova.

Álit sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.


Til baka