logo-for-printing

18. desember 2019

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2019

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2019 dagsett 21. nóvember sl. þar sem að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum óbreyttum við síðustu meginvaxtaákvörðun sína dags 11. desember 2019 sbr. tilkynningu þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 3,75%.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 10,75% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2020.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2020:

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,05% - (lækka úr 5,20%)
• Vextir verðtryggðra útlána 2,90% - (eru óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 3,37% - (lækka úr 3,47%)

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2019

Til baka