logo-for-printing

21. apríl 2020

Ábendingar til aðila á lífeyrismarkaði vegna COVID-19

Höfðatorg
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur sent aðilum á lífeyrismarkaði dreifibréf með ábendingum varðandi starfsemi lífeyrissjóða og vörsluaðila séreignarsparnaðar vegna COVID-19. Þar er meðal annars fjallað um rekstrarsamfellu og rekstraráhættu þessara aðila, lausafjárstöðu, tryggingafræðilega stöðu, hagsmuni sjóðfélaga og lífeyrisþega ásamt upplýsingagjöf.
Til baka