logo-for-printing

25. júní 2020

Veiting innheimtuleyfis til Erra ehf.

Bygging Seðlabanka Íslands

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt Erra ehf., kt. 600619-0980, innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum nr. 95/2008, dagsett hinn 15. júní 2020.

Innheimtuleyfi Erra ehf. tekur til frum- og milliinnheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra skv. a-lið 1. mgr. 3. gr. nefndra laga og innheimtu eigin peningakrafna sem aðili hefur keypt í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfur í atvinnuskyni skv. 5. gr. sömu laga.


Til baka