logo-for-printing

08. október 2020

ALM Verðbréf hf. skráð sem rekstraraðili sérhæfra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði ALM Verðbréf hf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 6. október 2020, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.

Félagið hefur einnig starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Til baka