logo-for-printing

08. október 2020

Landsbréf hf. fá starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti Landsbréfum hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða sbr. 6. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 6. október 2020. Í leyfinu felst að félaginu er heimilt að reka sérhæfða sjóði sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Félagið hefur einnig starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Til baka