logo-for-printing

20. nóvember 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 10/2019 dagsett 19. október sl. þar sem grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hefur lækkað þar sem peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að lækka meginvexti um 0,25 prósentur við meginvaxtaákvörðun sína hinn 18. nóvember sl.

Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,25 prósentur og verða 8,50% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2020.

Aðrir vextir af peningakröfum sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2020:

• Vextir óverðtryggðra útlána 3,50%
• Vextir verðtryggðra útlána 2,00%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,34%

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2020


Til baka