logo-for-printing

30. nóvember 2020

Regluleg gjaldeyrissala Seðlabanka Íslands

Bygging Seðlabanka Íslands

Frá og með þriðjudeginum 1. desember nk. og til mánaðarloka mun Seðlabanki Íslands selja viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði 3 m. evra hvern viðskiptadag, samtals 63 m. evra. Viðskiptin munu fara fram fljótlega eftir opnun markaðarins og eigi síðar en kl. 10 árdegis. Viðskiptin eru í samræmi við frétt nr. 30/2020 frá 9. september 2020.

Seðlabankinn hóf reglulega sölu á gjaldeyri til viðskiptavaka 14. september sl. og er markmiðið að auka dýpt gjaldeyrismarkaðarins og bæta verðmyndun. Bankinn seldi 63 m. evra (10,2 ma.kr.) í þessum viðskiptum í nóvember og frá 14. september hefur bankinn selt samtals 168 m. evra (27,3 ma.kr.) í reglulegum viðskiptum. 

Gjaldeyrissala þessi hefur ekki áhrif á yfirlýsta stefnu bankans um að grípa inn í á gjaldeyrismarkaði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann telur tilefni til.

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í síma 569 – 9600.

Sjá nánar í frétt nr. 30/2020 frá 9. september 2020 um reglubundna gjaldeyrissölu Seðlabankans.

 


Frétt nr. 42
30. nóvember 2020


Til baka