logo-for-printing

14. desember 2020

Rekstrarfélag Virðingar hf. fær starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða

Bygging Seðlabanka Íslands
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti Rekstrarfélagi Virðingar hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða sbr. lög nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóð hinn 9. desember 2020. Í leyfinu felst að félaginu er heimilt að reka sérhæfða sjóði sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Félagið hefur einnig starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Til baka