logo-for-printing

30. desember 2020

Regluleg gjaldeyrissala Seðlabanka Íslands

Bygging Seðlabanka Íslands

Frá og með mánudeginum 4. janúar nk. og til mánaðarloka mun Seðlabanki Íslands selja viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði 3 m. evra hvern viðskiptadag, samtals 60 m. evra. Viðskiptin munu fara fram fljótlega eftir opnun markaðarins og eigi síðar en kl. 10 árdegis. Viðskiptin eru í samræmi við yfirlýsingu nr. 30/2020 sem birtist 9. september 2020.

Seðlabankinn hóf reglulega sölu á gjaldeyri til viðskiptavaka 14. september sl. og er markmiðið að auka dýpt gjaldeyrismarkaðarins og bæta verðmyndun. Samtals seldi bankinn 63 m. evra (9,8 ma.kr.) með reglubundnum hætti í desember. Frá 14. september hefur bankinn selt samtals 231 m. evra (37 ma.kr.) í reglulegum viðskiptum.

Bankinn mun í lok hvers mánaðar tilkynna um fjárhæð og ætlaða viðskiptadaga fyrir sölu gjaldeyris í mánuðinum sem í hönd fer og mun fjárhæðin taka mið af aðstæðum á markaði. Miðað verður að því að umfang gjaldeyrissölunnar sé í samræmi við eðlilega virkni markaðarins. Seðlabankinn áskilur sér því fullan sveigjanleika til að aðlaga fjárhæð, tíðni og framkvæmd sölunnar til að tryggja skilvirkni aðgerðarinnar.

Gjaldeyrissala þessi hefur ekki áhrif á yfirlýsta stefnu bankans um að grípa inn í á gjaldeyrismarkaði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann telur tilefni til.

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í síma 569 – 9600. 

Frétt nr. 44/2020
30. desember 2020

Sjá hér nánar frétt bankans um efnið frá 9. september sl.

Til baka