logo-for-printing

15. janúar 2021

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals, fyrrverandi seðlabankastjóra, og veittur er af Seðlabanka Íslands.

Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Styrkfjárhæðin nemur fjórum milljónum króna og verður henni úthlutað í maí 2021. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2021.

Hægt er að sækja um styrkinn með rafrænum hætti í gegnum þjónustugátt bankans.

Einnig er hægt að póstsenda umsóknir í fjórum eintökum og er umsóknareyðublað aðgengilegt hér: Menningarstyrkur og í afgreiðslu bankans á Kalkofnsvegi 1.

 

Til baka