logo-for-printing

21. janúar 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 12/2020 dags 18. desember sl. þar sem að engin meginvaxtaákvörðun hefur verið af hálfu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands síðan þá.

Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,50%.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 8,50% fyrir tímabilið 1. - 28. febrúar 2021.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána 3,30%
• Vextir verðtryggðra útlána 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,20%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2021
Til baka