logo-for-printing

29. janúar 2021

Elmar Ásbjörnsson settur framkvæmdastjóri bankasviðs Seðlabankans

Elmar Ásbjörnsson
Elmar Ásbjörnsson

Elmar Ásbjörnsson hefur verið settur framkvæmdastjóri bankasviðs Seðlabanka Íslands. Elmar hóf störf hjá Fjármálaeftirlitinu sem sérfræðingur í fjárhagslegu eftirliti fjármálafyrirtækja árið 2011, en hefur starfað sem forstöðumaður áhættugreiningar fjármálafyrirtækja frá 2014. Áður var Elmar sérfræðingur á fyrirtækjasviði Landsbankans og viðskiptastjóri Saxo Bank í Danmörku. Elmar er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá HÍ, MA-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá HÍ og með löggildingu í verðbréfamiðlun.

 

Til baka