logo-for-printing

03. febrúar 2021

Vefútsending, yfirlýsing peningastefnunefndar og útgáfa Peningamála

Bygging Seðlabanka Íslands

Yfirlýsing peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands var birt klukkan 8:30 í dag hér á vef Seðlabankans. Fáeinum mínútum síðar var ritið Peningamál birt á vefnum. Klukkan 10:00 hefst svo vefútsending þar sem Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar, yfirlýsingunni og efni Peningamála.

Sem fyrr er rétt að taka fram að Seðlabankinn tekur ekki ábyrgð á mögulegum hnökrum sem kunna að verða í útsendingu.

Upptaka af vefútsendingu er aðgengileg hér fyrir neðan.


Til baka