logo-for-printing

02. mars 2021

Viðskiptaafgangur 22,1 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi 2020 – hrein staða við útlönd jákvæð um 1.039 ma.kr.

Bygging Seðlabanka Íslands

Á fjórða ársfjórðungi 2020 var 22,1 ma.kr. afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd samanborið við 2,9 ma.kr. ársfjórðunginn á undan. Viðskiptaafgangur fyrir árið 2020 í heild nam 30,9 ma.kr. samanborið við 193,9 ma.kr. fyrir árið á undan. Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.039 ma.kr. eða 35,3% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 83 ma.kr. eða 2,8% af VLF á fjórðungnum.

Sjá hér fréttina í heild með töflum:

Frétt  nr. 7/2021: Viðskiptaafgangur 22,1 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi 2020 – hrein staða við útlönd jákvæð um 1.039 ma.kr. 

Til baka