logo-for-printing

20. apríl 2021

Fyrsta eintak Fjármálaeftirlits komið út

Forsíða Fjármálaeftirlits 2021
Fyrsta eintak Fjármálaeftirlits hefur verið birt á vef Seðlabankans. Með árlegri útgáfu ritsins hyggst Seðlabankinn tryggja viðeigandi gagnsæi um störf og áherslur innan bankans á sviði fjármálaeftirlits með því að skýra frá því hvernig bankinn vinnur að þeim verkefnum sem Seðlabanka Íslands er falið í lögum eftir sameiningu hans og Fjármálaeftirlitsins og upplýsa eftirlitsskylda aðila um helstu áherslur í yfirstandandi verkáætlun. Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Financial Supervision.

Sjá hér: Fjármálaeftirlit 2021
Til baka