logo-for-printing

20. maí 2021

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2021

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 04/2021 dagsett 19. apríl sl., en grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hefur hækkað þar sem peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að hækka meginvexti um 0,25 prósentur við meginvaxtaákvörðun sína hinn 19. maí sl.

Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,25 prósentur og verða 8,75% fyrir tímabilið 1. - 30. júní 2021.

Aðrir vextir af peningakröfum sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2021:

• Vextir óverðtryggðra útlána 3,30%
• Vextir verðtryggðra útlána 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,20%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2021


Til baka